Landnámssetur var opnað 13. maí 2006 og er starfrækt í þremur húsum við brúarsporðinn út í Brákarey, Pakkhúsinu, Búðarkletti og Skálanum, tengibyggingu á milli Búðarkletts og Pakkhússins.
Pakkhúsið
Pakkhúsið er eitt af elstu húsum Borgarness, byggt í lok 19. aldar. Húsið var notað sem geymsla og vöruhús fyrir verslun Akra-Jóns sem rekin var í Búðarkletti. Húsið er oft kennt við Thor Jensen, en hann hóf verslunarumsvif sín í Borgarnesi og hafði frumkvæði að byggingu Pakkhússins. Pakkhúsið var endurbyggt með styrk frá Húsafriðunarnefnd í umsjón Magnúsar Skúlasonar, arkitekts. Borgarbyggð á húsið og leigir Landnámssetri Íslands afnot af því undir sýningar sínar. Kjallarinn, sem er með gamalli steinhleðslu, hefur verið dýpkaður og varð þar til dulúðugur og skemmtilegur sýningarsalur. Þar er í hljóðleiðsögn rakinn söguþráðurinn í Egilssögu og atburðir sögunnar myndgerðir í tré. Fjöldi listamanna kom að gerð myndanna sem fanga á einstakan hátt andrúmsloft sögunnar.
Veitingahús Landnámsseturs í Búðarkletti
Í Búðarkletti var í upphafi verslun Akra-Jóns en þegar hallaði undan fæti í rekstrinum tók við honum norskur kaupmaður að nafni Johan Lange. Johan þessi var búsettur í Noregi en fékk ungan danskan mann Thor Jensen til að annast reksturinn fyrir sig. Thor Jensen byrjaði því umsvif sín í verslun sem „faktor” (verslunarstjóri) í Búðarkletti. Þar er nú veitingahús Landnámsseturs. Húsið var allt gert upp árið 1997 og aftur nú fyrir opnun Landnámsseturs. Það voru börn og fjölskyldur Ólafs Sverrissonar fyrrverandi kaupfélagsstjóra í Borgarnesi og konu hans Önnu Ingadóttur sem stóðu fyrir því. Þau keyptu húsið og afhentu það Landnámssetri til afnota til minningar um foreldra sína en Ólafur Sverrisson var kaupfélagsstjóri í Borgarnesi frá 1960 – 1980. Þetta hús er ásamt Pakkhússinu stolt Borgarness þegar kemur að sögulegum húsum sem varðveitt hafa verið. Í veitingahúsi Landnámsseturs er tveir fallegir salir Hvíti salur og Arinstofa sem samtals rúma um 100 manns í sæti.
Skálinn
Á milli Búðarkletts og Pakkhússins hefur verið byggð tengibygging sem hlotið hefur nafnið Skálinn. Aðalinngangur setursins og miðasala er í Skálanum. Þar er gjafavöruverslun þar sem seldar eru vörur hannaðar og/eða unnar af íslenskum hugvitsmönnum og konum. Skálinn er u.þ.b. 140 m² að stærð, byggður upp að klettinum á bak við húsin. Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt hjá VA arkitektum hannaði Skálann og er þess sérstaklega gætt að láta hin sögulegu hús sem hann tengir njóta sín sem best. Sigríður og VA arkitektar voru tilnefnd til myndstefsverðlauna árið 2006 fyrir þennan skála og fyrir hús Bláa Lónsins sem einnig eru eftir hana.






